Ölnir nýtur sín vel á meginlandinu
Ölnir frá Akranesi er einn af þeim stóðhestum sem yfirgefið hefur landsteinanna síðastliðna mánuði og er nú staddur í Danmörku, nánar tiltekið á búgarðinum Teland þar sem Steffi og Rune Svendsen ráða ríkjum.
Hann virðist njóta sín vel þar í landi af þeim myndum af dæma sem birtust af honum nýverið. „Ég var að kynnast Ölni núna nýlega og er því ekki með mikla reynslu af honum en ég verð að segja að hann er mjög vel taminn og þjálfaður. Hann er stór og myndarlegur og einstaklega prúður í allri umgengni og auðveldur á allan hátt.“ Segir Steffi þegar hún er spurð að því hvernig það sé að þjálfa Ölni. „Þegar maður er svo kominn á bak honum út í náttúrunni, ströndinni í þessu tilfelli, er tilfinningin æðisleg. Hann er botnlaust rúmur á tölti, brokki og skeiði og gangtegundirnar eru vel aðskildar og hreinar. Töltið í honum er alltaf tandurhreint og mjúkt sama á hvaða hraðastigum er riðið. Það sem er þó einna eftirtektarverðast er það að hann er alltaf léttur á taum og eins og áður segir virðist endalaust rúmur. Við erum í nútímanum farin að einblína meira á hægari gangtegundirnar og mikilvægi þeirra en við þurfum alltaf að viðhalda rými og þeirri hestgerð sem Ölnir er. Þá er hann einstakalega taugagóður, hafði aldrei komið á Skieveren ströndina (EM 1977) áður. Hann kippti sér ekkert upp við það þó öldugangurinn væri ansi mikill og hávaðarok.“
Myndirnar af strandferð Steffi og Ölnis tala sínu máli og er ekki ólíklegt að margir hestamenn vildu vera staddir þar á slóðum ríðandi frábærum gæðingi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH