Opið gæðinga- og töltmót
Sóllilja frá Sauðanesi og Þórarinn Ragnarsson sigruðu a flokkinn á gæðingamóti Smára í fyrra.
Stjórnir hestamannafélaganna Smára og Loga ákváðu á fundi sínum í vikunni að sameinast um opið gæðinga og töltmót á mótssvæði Smára við Reiðhöllina á Flúðum helgina 25-26.júlí næstkomandi.
Hestamannafélögin Smári og Logi hafa átt gott og ánægjulegt samstarf á veturna í gegnum Uppsveitadeildina, töltmót, námskeiðahald og á mörgum öðrum sviðum og er sameiginlegt mót að sumrinu tilraun til að efla enn frekar mótahald í uppsveitunum á besta tíma ársins.
Stefnt er að því að hefja mótið í flugskeiði með rafrænni tímatöku á föstudagskvöldið. Forkeppni í gæðingakeppni verður á laugardagsmorgunn og forkeppni í tölti eftir hádegi og fram eftir degi. Að loknu grilli og kvöldvöku verða úrslit í tölti fullorðinna. Peningaverðlaun verða í boði í tölti.
Á sunnudagsmorgni verður forkeppni í tölti, ungmenna, unglinga og barna og úrslit í þeim greinum að þeim loknum. Eftir hádegi taka svo við úrslit í gæðingakeppni.
Dagskrá kann að breytast eftir því hvernig skráningu vindur fram.
Opnað verður fyrir skráningu á mótið þriðjudaginn 12.júlí á sportfeng.com og lýkur henni á miðnætti þriðjudaginn 21.júlí. Skráningargjöld eru 1500 kr fyrir börn og unglinga í alla flokka, 2500 kr fyrir ungmenni og fullorðna í gæðingakeppni og 3500 kr fyrir ungmenni og fullorðna í tölt og 2000 kr í flugskeið .
Hestagerði er á staðnum og hægt að koma ríðandi og hvetjum við alla félaga og aðra hestamenn að láta sjá sig og njóta fallegra hesta í Uppsveitunum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH