Hestamannafélagið Sörli Opið gæðingamót fyrir 21 árs og yngri

  • 19. ágúst 2026
  • Fréttir
Ákveðið hefur verið að halda Gæðingafjör fyrir 21 árs og yngri - OPIÐ MÓT - allir krakkar velkomnir.

Þriðjudaginn 25. ágúst verður haldið Gæðingafjör fyrir 21 árs og yngri á félagssvæði Sörla. Hefst mótið kl 18:00.

Keppt verður í Gæðingaflokki í barna og unglinga flokkum. Í ungmennaflokki verður keppt í A og B flokk. Gæðingatölti verður einn flokkur 21 árs og yngri.

„Hvetjum við alla káta krakka að taka þátt í síðasta mótinu sem haldið verður í þeirra aldursflokkum í ár.“

Stefnt er að því að ríða forkeppni og úrslit á þriðjudeginum, en ef skráningin verður mikil gætu úrslit dregist fram á miðvikudag og við byrjum þá á sama tíma kl 18:00.

Skráningu líkur á miðnætti sunnudaginn 23. ágúst. Frí skráningagjöld.

Hér er hægt að skrá í mótið. Ef krakkarnir ætla að skrá sig í fleiri greinar en eina þá þarf að skrá inn aftur fyrir næstu grein.

Stebbukaffi verður að sjálfsögðu opið.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link