Opið gæðingamót Hrings 10-12 júní
Opna gæðingamót Hrings verður haldið dagana 10-12. júní á Hringholtsvellinum. Mótið er úrtaka fyrir Landsmót fyrir félögin Funa, Grana, Hring, Létti og Þjálfa.
Opnað hefur verið fyrir skráningar á sportfeng og keppt verður í eftirfarandi greinum:
- A flokkur
- B flokkur
- Barnaflokkur
- Unglingaflokkur
- B flokkur ungmenna
- Tölt T1 opinn flokkur
- 100 metra skeið
- 150 metra skeið
- 250 metra skeið / með fyrirvara um að skeiðbrautin verði lögleg samkv. nýjum reglum.
A flokkur, B flokkur og tölt T1 : 4.000 kr. pr. skráning
Barnaflokkur : 500 kr. pr. skráning
Unglinga- og ungmennaflokkur : 3.000 kr. pr. skráning
Skeiðgreinar : 3.500 pr. skráning
Skráningarfrestur rennur út miðvikudaginn 8. júní og ekki er tekið við skráningum eftir þann tíma.
Frekari upplýsingar og tæknilega aðstoð veitir mótanefnd Hrings, [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH