Helgina 4-5 júní mun mótanefnd Hrings halda opið Gæðingamót ásamt Tölti og skeiði á vellinum við Hringsholt, þetta verður einnig úrtaka fyrir Landsmót fyrir Hringsfélaga.
Nánari dagskrá verður birt þegar nær dregur, nefndin áskilur sér rétt til að fella niður greinar ef næg þátttaka næst ekki. A úrslit verða riðinn í öllum flokkum en ekki er reiknað með að riðin verði B úrslit nema ef þátttaka verði veruleg.
Keppnisgreinar eru:
A- flokkur gæðinga skráningargjald 3.000 krónur
B- flokkur gæðinga skráningargjald 3.000 krónur
Ungmennaflokkur skráningargjald 2.000 krónur
Unglingaflokkur skráningargjald 2.000 krónur
Barnaflokkur skráningargjald 2.000 krónur
Tölt T1 skráningargjald 3.000 krónur
100 mtr. skeið skráningargjald 3.000 krónur
150 mtr. skeið skráningargjald 3.000 krónur
250 mtr. skeið skráningargjald 3.000 krónur
Skráningargjald skal leggja inná reikning 0177-26-175 kt.540890-1029 fyrir kl. 20:00 föstudaginn 3.júní og staðfesting send á netfangið
[email protected] og setja í skýringu
MÓTAGJALD.
Mótanefnd Hrings