Opið haustmót Léttis 2020

  • 20. ágúst 2020
  • Fréttir

Haustmót Léttis á Hlíðarholtsvelli 29.ágúst 2020

Keppt verður í:
Tölti T3 – T4 og T7 – skráningargjald 4000 kr.
Fjórgangi V2 skráningargjald 4000 kr.
Fimmgangi F2. skráningargjald 4000 kr.
100m flugskeiði – skráningargjald 4000 kr.
PP1 – Gæðingaskeið – skráningargjald 4000 kr.

Skráning er á http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add
og lýkur skráningu á miðnætti miðvikudaginndaginn 26. ágúst.
Ef keppendur óska eftir að skrá eftir að skráningarfresti lýkur er greitt tvöfalt skráningargjald. Ekki er tekið við skráningum eftir að ráslisti hefur verið birtur.

Ábendingar og fyrirspurnir sendist á [email protected]
p.s. nefndin áskilur sér rétt að fella greinar eða mótið í heild sinni niður ef ekki næst næg þátttaka.
Stefnt er á að hafa 5 dómara.

Til að mótið geti farið fram verðum við að treysta á að keppendur og áhorfendur vinni með okkur að fylgja öllum reglum almannavarna sem munu gilda á þessum tíma.

Mikilvægt er að keppendur og starfsmenn passi vel uppá 2 metra regluna.

Vakin er athygli á því að áhorfendabann er á öllum mótum í hestaíþróttum án undantekninga.

Með kveðju.
Skeiðvallanefnd Léttis

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link