Opið hús hjá aðstandendum „Léttleiki og frelsi“
Í framhaldi af dagskrá fræðsludagsins „Léttleiki og frelsi“ sem hefst á morgun kl 09:30 í félagsheimili hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ,..
ætla aðstandendue dagsins að vera með opið hús í hesthúsum sínum sem öll eru í hverfi Harðar. „Það verður heitt á könnunni og eitthvað með“ sagði Súsanna Sand Ólafsdóttir.
Léttleiki og frelsi 11.12.2010
Dagskrá:
08:30 Húsið opnar – félagsheimili Harðar
09:30 Þórhildur Þórhallsdóttir hjá Hestamennt.is (öðuvísi fræðslufyrirtæki) félagsfræðingur og framhaldsskólakennari flytur
erindi. Spurningum svarað.
10:00 Þórunn Ólý Óskarsdóttir félagsráðgjafi flytur erindi en hún var heiðruð af Barnaheill á dögunum fyrir 24 ára starf sitt með unglingum sem hafa á einhvern hátt orðið undir í lífinu. Hún segir frá þvi hvernig hún byggir upp kjark þeirra og sjálfstraust með hestaMENNSKU! Spurningum svarað.
10:30 Umræður og kaffi.
11:00 Kristbjörg Hall NAADAC ráðgjafi, fjallar um „BURN-OUT“, kulnun í starfi, einkenni og hvað er til ráða, hver þekkir ekki sveiflur í þessu starfi? Sigra/ósigra, hamingju, hroka, depurð. Spurningum svarað.
11:30 Súsanna Sand Ólafsdóttir flytur erindi um léttleika og frelsi hesta og manna. Reiðkennsla á forsendum nemandans/knapans, allir í kennslustundinni eiga rétt á sömu þjónustu, erum líka að vinna með/og fyrir fólk. Spurningum svarað.
12:00 Umræður
12:15 Matur reiddur fram af Guðmundi Björgvinssyni (Makkerinn)
13:00 Sýnikennsla – Reiðhöll Harðar
Léttleiki og frelsi I- Súsanna Sand Ólafsdóttir
Spenntur knapi/spenntur hestur – Lina Erikson reiðkennari
Jafnvægi knapans – Line Nörgard reiðkennari
Léttleiki og frelsi II – Súsanna Sand Ólafsdóttir
Leiðtoginn – Þórhildur Þórhallsdóttir félagsfræðingur
Leyniatriði – Eitthvað skemmtilegt sem kemur öllum á óvart!!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson