Opið ísmót á Hrísatjörn um helgina
Opið ísmót verður haldið á Hrísatjörn laugardaginn 25. febrúar nk. Keppt verður í Líflands-Tölti og Húsasmiðju-100m skeiði.
„Skráningar skulu berast á netfangið [email protected] fyrir fimtudagskvöldið 23. febrúar kl. 20. Við skráningu skal koma fram nafn knapa, nafn hests, grein og litur hests.
Skráningargjald er 2000 kr. fyrir fyrstu grein, en 1500 kr. á næstu. Skráningargjald þarf að leggja inná kt. 540890-1029, reikn: 1177-26-175 tilvísun ísmót kvittun sendist á [email protected].
Skráning telst ógild þar til greiðsla hefur borist. Mótið hefst kl. 12 og skulu knapar vera mættir kl. 11.30. Nánari upplýsingar hjá Svavari 6624216 eða á [email protected],“ segir í tilkynningu frá mótanefnd Hrings.
Í fyrra sigraði Atli Vigfússon á Krumma frá Egilsá ekki óþekkari keppinauta en Stefán Friðgeirsson og Dag frá Strandarhöfði og Önnu Kristínu Friðriksdóttur og Glað frá Grund. Það var svo Ragnar Stefánsson sem fór með sigur af hólmi í skeiðinu á Maur frá Fornhaga þegar hann fór metranna 100 á 8,75 sekúndum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH