Opið ísmót Hrings
„Laugardaginn 2. febrúar nk. kl 12:00 mun hestamannafélagið Hringur standa fyrir opnu ísmóti. Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Tölt opinn flokkur
Tölt opinn flokkur-minna vanir
(Mótshaldarar áskila sér rétt til að sameina tölt flokka náist ekki skráning í annan hvorn flokkinn.)
100m. skeið fljúgandi start.
Skráningar skulu berast Bjarna Valdimarssyni á tölvupóstfang [email protected] fyrir miðvikudaginn 30.janúar kl 20:00.
Skráningargjald á fyrstu skráningu pr.knapa er 2.500 kr. en 1.500 kr á næstu skráningar.
Keppni fer fram á Hrísatjörn,“segir í tilkynningu frá Hestamannafélaginu Hring
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV