Opið Ísmót Riddara Norðursins
Ef veður leyfir verður haldið ísmót á Tjarnartjörninni (sunnan við Reiðhöllina Svaðastaðir) á Sauðárkróki, sunnudaginn 14. feb. næstkomandi, kl. 13:00.
Keppt verður í eftirtöldum flokkum:
- A-flokkur (sýna þarf tölt, brokk og skeið)
- B-flokkur (sýna þarf hægt tölt, brokk og greitt tölt)
- Tölt (sýna þarf hægt tölt, hraðabreytingar og greitt tölt)
- Tölt Yngri flokkur (16 ára og yngri) (sýna þarf hægt tölt, hraðabreytingar og greitt tölt)
- Tölt minna keppnisvanir (sýna þarf hægt tölt, hraðabreytingar og greitt tölt)
Riðnar verða fjórar ferðir í hverjum flokki . Úrslit eftir hvern flokk. Skráningargjald kr. 1.000,- Skráning hjá Munda í síma 895-6409 fyrir kl.13:00 laugardaginn 13.febrúar.
Allar upplýsingar má sjá á heimasíðunni www.123.is/riddarar/
Riddarar Norðursins
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH