Opið Ísmót verður haldið á Tjarnatjörninni, Sauðárkróki
„Riddarar Norðursins halda opið ísmót laugardaginn 9 feb kl 14.00
Skráning er í Tjarnabæ milli kl. 12 og 13.
Hver skráning kostar 1000 kr.
Dagskráin verður svo hljóðandi:
B-flokkur
Tölt, 17 ára og yngri.
Tölt
Tölt áhugamannaflokkur
A-Flokkur
Keppnisfyrirkomulag er þannig að í Tölti 17 ára og yngri er riðin ein ferð á hægu tölti, ein ferð hraðabreytingar, ein ferð yfirferðar tölt, og ein aukaferð þar sem knapi ræður hvað hann sýnir.
Tölt áhugamanna er riðið eins.
Tölt er einnig riðið eins.
B-flokkur er riðinnn þannig að fyrsta ferð er hægt tölt, næsta brokk, þá yfirferð og ein aukaferð sem knapi ræður sjálfur hvað hann sýnir.
A-flokkur er riðinn þannig að fyrsta ferð er tölt, næsta skeið, þá brokk og ein frjáls ferð,“ segir i tilkynningu frá Riddurum Norðursins
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH