Opið íþróttamót Gusts WR
Íþróttamót Gusts, sem er opið World Ranking mót, mun fara fram í Glaðheimum í Kópavogi dagana 15. -16. maí nk.
Skráning fer fram dagana 6. – 10. maí á vefnum www.gustarar.is undir liðnum skráning.
Keppnisgreinar verða eftirfarandi:
- Börn : Tölt, fjórgangur og fimi A
- Unglingar: Tölt, fjórgangur, fimmgangur, gæðingaskeið og fimi A.
- Ungmenni: Tölt, fjórgangur, fimmgangur, gæðingaskeið, slaktaumatölt og flugskeið.
- Fullorðnir 2. flokkur: Tölt, fjórgangur, fimmgangur, gæðingaskeið, slaktaumatölt og flugskeið.
- Fullorðnir 1. flokkur: Tölt, fjórgangur, fimmgangur, gæðingaskeið, slaktaumatölt og flugskeið.
Skráningagjöld eru:
Börn og unglingar: 2500 kr. hver skráning.
Aðrir: 3500 kr. hver skráning.
Ganga þarf frá greiðslu skráningargjalda með greiðslukorti við skráningu.
Mótanefnd Gusts
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH