Opið íþróttamót Hrings
Opið Íþróttamót Hrings verður haldið laugardaginn 21. maí á Hringsholtsvelli. Keppni hefst kl. 10.30.
Keppt verður í eftirfarandi greinum.
Opinn flokkur og ungmennaflokkur:
Tölt
Fjórgangur
Fimmgangur
Gæðingaskeið
100m skeið (rafræn tímataka)
Barnaflokkur og unglingaflokkur:
Tölt
Fjórgangur
Skráningu skal lokið fyrir þriðjudaginn 17. maí kl. 20 á heimasíðu félagsins (á forsíðu hægrameginn neðst í valstiku)
Skráningargjald í opinn flokk og ungmennaflokk er 2500 kr. á fyrstu grein og 2000 kr. á næstu greinar.
Skráningargjald í barna og unglingaflokk er 1000 kr. á grein.
Skráningargjald skal lagt inn á reikning félagsins 1177-26-175, kennitala 540890-1029, tilgreina þarf fyrir hvernig er verið að greiða ef annar en keppandi greiðir. Greiðslufrestur er til fimmtudags 19. maí kl. 20.
Athugið að ef ekki fæst næg þátttaka áskiljur mótanefnd sér rétt á því að fella keppnisgreinar niður.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá mótanefnd Hrings.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH