Opið íþróttamót Þyts næstu helgi
Mynd/thytur.123.is
Opna íþróttamót Þyts Verður haldið dagana 20.-21. ágúst 2011 á Kirkjuhvammsvelli á Hvammstanga að er fram kemur á heimasíðu félagsins.
Greinar:
4-gangur og tölt 1.flokkur
4-gangur og tölt 2.flokkur
4-gangur og tölt ungmennaflokkur
4-gangur og tölt unglingaflokkur
4-gangur og tölt barnaflokkur
5-gangur 1.flokkur
T2/slaktaumatölt 1.flokkur
Gæðingaskeið
100 metra skeið
300 metra Brokk
300 metra Stökk
Skráning fer fram á [email protected] og henni lýkur á miðnætti þriðjudaginn 16.ágúst, við skráningu skal koma fram IS númer hests, kennitala knapa, í hvaða grein og uppá hvora höndina. Fyrsta skráning kostar 2500 kr. næsta skráning 1500 kr. 1000 kr. fyrir börn og unglinga. Borga skal skráningargjöld inn á reikning 0159-26-001081 kt. 550180-0499 áður en mótið hefst.
Mótanefnd áskilar sér rétt til þess að fella niður greinar ef ekki næst næg þátttaka.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH