Opið karla- og kvennatölt Mána
Opið karla- og kvennatölt Mána verður haldið í Mánahöllinni laugardaginn 24.mars kl.18:00.
Ath – Einungis 1.flokkur er opinn í karla og kvennatölti
Boðið verður upp á eftirfarandi flokka:
Konur (opinn) 1. flokkur – hægt tölt, snúið við, hraðabreytingar og fegurðartölt, val um hönd.
Konur 2. flokkur – hægt tölt og fegurðartölt, riðið upp á vinstri hönd.
Karlar (opinn) 1. flokkur – hægt tölt, snúið við, hraðabreytingar og fegurðartölt, val um hönd
Karlar 2. flokkur – hægt tölt og fegurðartölt, riðið upp á vinstri hönd.
Aldurtakmark í keppni er 22 ár.
Skráningargjald er kr. 3000 kr. Skráning fer fram á Sportfengur.com en síðasti skráningardagur er miðvikudagur 21. mars. Konur velja Tölt T3 sem keppnisgrein á Sportfeng og karlar Tölt T1.
Mætum og höfum gaman saman.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Mótanefnd.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH