Opið næturbrölt

  • 29. janúar 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Töltum inn í nóttina undir dansandi norðurljósum.

Hestamannafélagið Sóti heldur opið töltmót, laugardagskvöldið 31. janúar kl., 20:00 á upplýstum velli félagins á Álftanesi. Riðið verður hægt tölt og fegurðartölt og 5 bestu í hvorum flokki ríða úrslit. Skráning er á staðnum (í félagshúsinu) frá kl. 19:00—20:00

Keppt verður í tveimur flokkum – 18 ára og eldri (skráningargjald: 1.000.– kr. per hest) – 17 ára og yngri (skráningargjald: 500.– kr per hest) Verðlaunaafhending fer fram í félagshúsinu eftir mót og kemur hver með fljótandi veitingar fyrir sig og sína.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link