Opið skeiðmót á Sauðárkróki

  • 23. september 2009
  • Fréttir
Opið skeiðmót á Sauðárkróki

Föstudaginn  25. september kl. 15.00 heldur Skeiðfélagið Kjarval  opið skeiðmót á svæði hestamannafélagsins Léttfeta, Fluguskeiði á Sauðárkróki.  Keppt verður í 150 og 250 metra skeiði úr básum. Tekið er á móti skráningum á netfangið [email protected]. Skráningu lýkur miðvikudaginn 23. september klukkan 22:00. Skráningargjald er krónur 2.000,- á fyrstu skráningu en 1000,- kr eftir það. Við skráningu þarf að gefa upp kennitölu knapa og IS-númer hests og grein. Leggja skal skráningargjöld inn á reikning 0161-05-0700044 kt. 110380-4619.

Skeiðfélagið Kjarval.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link