Opið töltmót Grana að Mið-Fossum
Nú er komið að 2. vetrarmóti Hestamannafélagsins Grana á Hvanneyri. Haldið verður opið töltmót fimmtudaginn 18.mars næstkomandi að Mið-fossum í Borgarfirði og hefst mótið kl. 18:00.
Keppt verður í 1. flokki, 2. flokki og Bjórtölti (eða Kóktölti fyrir börn).
Skráning á mótið þarf að berast fyrir klukkan 22:00 á miðvikudagskvöldið 17.mars. Tekið verður við þeim á [email protected]
Koma þarf fram:
- Nafn knapa.
- Nafn hests.
- Aldur.
- Litur.
- Hönd sem riðið er uppá.
- Flokkur sem keppt er í.
Skráningargjöld borgast á staðnum í reiðufé.
Frítt er inn fyrir áhorfendur og sjoppa á staðnum 🙂
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH