Opið *WR íþróttamót Mána og TM verður 15.-16.maí
Opið íþróttamót Mána og TM sem frestað var verður haldið dagana 15.-16. Maí. Mótið er World Ranking mót. Keppt verður í öllum flokkum og greinum ef næg þátttaka fæst.
Skráning fer fram mánudaginn 10. maí í Mánahöllinni og í neðangreindum símum milli kl 20-22: 893-0304 (Þóra), 861-0012 (Hrönn), 848-6973 (Þórir), 695-0049 (Jóhann), 866-0054 (Bjarni), 861-2030 (Snorri), 891-9757 (Haraldur).
Skráningargjald er 3.000kr á grein og skal greiðsla fara fram við skráningu.
Munið fæðinganúmer (IS-númer) hrossanna. Hrossin verða að vera grunnskráð í Worldfeng. Einnig þarf kennitölu knapa.
Við viljum einnig minna á að þeir sem eru með farandbikara frá síðasta íþróttamóti að skila þeim í Mánahöllina þegar skráning verður.
Kveðja,
Mótanefnd Mána.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH