Opin gæðingakeppni hjá Faxa
Opin gæðingakeppni Faxa 2012 verður haldin á Mið-Fossum Laugardaginn 21.júlí og hefst keppni kl.10:00. Keppt verður í A flokki , B- flokki, barnaflokki, unglingaflokki og ungmennaflokki.
Skráningargjald er 2500 kr. í A og B- flokk fyrir fyrsta hest og svo 1500 kr. Ungmenni 2500 kr, börn og unglingar 1500kr. Skráning á netföngin [email protected] og í síma 8995140 Ómar. Skráningu lýkur þriðjudaginn 17.júlí kl. 22:00. Skráningargjöld skulu greiðast á reikning 0326-26-5300 kt.530169-0659 fyrir kl. 12:00 miðvikudaginn 18.júlí(annars telst skráningin ekki gild), setja skal IS númer hests sem skýringu. Senda skal kvittun fyrir greiðslunni á [email protected]. Við skráningu þarf að gefa upp nafn og fæðingarnúmer hests og einnig nafn, kennitölu og aðildarfélag eiganda og knapa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH