Opin íþróttakeppni Skugga

  • 1. maí 2011
  • Fréttir
Opin íþróttakeppni Skugga

Hestamannafélagið Skuggi heldur opið íþróttamót á velli félagsins við Vindás laugardaginn 7. maí n.k.

Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að undankeppni byrji kl. 10, byrjað verði keppni á fjórgangi, síðan fimmgangskeppni og svo verður keppt í tölti. Ráslistar verða birtir fyrir kl. 17 á föstudag.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum og greinum:
Barnaflokkur – tölt og fjórgangur
Unglingaflokkur – tölt og fjórgangur
Ungmennaflokkur – tölt og fjórgangur
Opinn flokkur – tölt, fjórgangur, fimmgangur og gæðingaskeið.

„Skráningargjöld eru kr. 2.000.- fyrir fyrstu skráningu og kr. 1.000.- fyrir næstu skráningar (kr. 1.000/500- í barnafl.) Skráningargjöld greiðist inn á reikning 0326 – 13 – 004810, kt: 481079-0399. Sendið kvittun á [email protected]. Skráning (IS númer hests, kennitala knapa og upp á hvora hönd á að byrja þarf að berast fyrir kl. 22 fimmtudaginn 5. maí á netfangið [email protected]. Upplýsingar hjá Reyni í síma 860-9014.

Hægt er að leigja stíur fyrir keppnishesta í reiðhöllinni fyrir kr. 1.000.- – Umsjón Ámundi s: 892-5678. Fótaskoðun fer fram í reiðhöllinni og þar verður jafnfram hægt að hita upp ef þannig stendur á,“ segir í tilkynningu frá mótanefnd Skugga.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link