Opin keppni í fánahlaupi hjá Ungmennafélagi Fáks
Ungmennafélag Fáks stendur fyrir keppni í Fánahlaupi í Reiðhöllinni í Víðidal föstudagskvöldið 19.febrúar kl. 20:30. Keppnin er liðakeppni, tvö lið etja kappi í einu og það er tími sem gildir. Í hverju liði eru þrír keppendur. Brautin er þannig að 6 tunnur með fánum sem færa þarf á milli.
Ungmennafélagið tekur við skráningum á netföngin [email protected] eða [email protected] og þar er einnig að fá frekari upplýsingar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH