Opinn fundur fyrir Landsþing LH.

  • 31. ágúst 2022
  • Fréttir

Hestamannafélagið Geysir verður með opinn fund fyrir alla þá sem áhuga hafa á málefnum hestamennskunnar til framtíðar.

Fundurinn verður haldinn í Rangárhöllinni við Hellu fimmtudaginn 1.sept og hefst kl 19:00.

Landsþing LH verður haldið í byrjun nóvember 2022 þar sem málefni hestaíþróttanna verða rædd.

Gott er að fá hugmyndir og sýn allra hestamanna um framtíð íslenskrar hestamennsku.

Nú er tækifærið til að hafa bein áhrif á framtíð hestaíþróttarinnar og fá umræður og hugmyndir sem geta bætt það sem þarf að bæta og einnig hvað er gott en þarf áframhaldandi aðhald.

Allir að mæta og eiga saman góða kvöldstund með umræðum um framtíð hestamennskunnar.

Stjórn Geysis

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link