Opinn landsliðsfundur 12.júlí – fyrirlestur með Guðmundi Guðmundssyni
Þriðjudaginn 12.júlí nk. mun Guðmundur Guðmundsson þjálfari íslenska karla handbolta landsliðsins flytja fyrirlestur á opnum fundi íslenska landsliðsins í hestaíþróttum…
Fundurinn verður haldinn í húsakynnum ÍSÍ, 3.hæð, og hefst stundvíslega kl.17:00.
Guðmundur hefur náð gífurlega góðum árangri með landslið sitt og því verður fróðlegt að hlusta á fyrirlestur hans þar sem hann mun m.a. fjalla um undirbúning fyrir keppni.
Allir áhugasamir eru hvattir til þess að mæta meðan húsrúm leyfir, ókeypis aðgangur.
Landsliðsnefnd LH.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing