Opna Barkarmótið
Nú styttist í hið geysivinsæla Barkamót, sem haldið verður í Reiðhöllinni í Víðidal, sunnudaginn 25. mars. Þátttaka á Barkamótinu er öllum opin og keppt er um veglegt verðlaunafé sem Barki ehf. gefur. Keppt er í tölti í þremur flokkum: 17 ára og yngri, áhugamannaflokki og opnum flokki. Leyfilegt er að skrá fleiri en einn hest til keppni, en komi knapi fleiri en einum hesti í úrslit skal hann velja einn til úrslitakeppni. Tveir keppendur eru inn á í einu og ríða eftir þul, hægt tölt, hraðabreytingar og yfirferð. ATH ekki snúið við í töltinu.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Allir á bak hlýtur samfélagsstyrk Krónunnar