Opnir Fjöruleikar
Hestamannafélagið Sóti, æskulýðsnefnd, heldur í fyrsta sinn OPNA fjöruleika!
Keppt verður í liðakeppni og þarf hvert félag að senda að lágmarki fjóra liðsmenn . Keppt verður í: A: Fjörukappreiðar 150 m (boðhlaup í fjörunni) B: Þrautabraut í fjörunni C: Fet-kappreiðar með ævintýraívafi (fyrir þá sem ekki treysta sér í hitt) D: Pollar – búningar – flottasta félagsþemað E: Brokk-boðhlaup (1 hringur) meðal foreldra (gildir í stigasöfnun) á vellinum meðan grillað er. Öllum keppendum er síðan velkomið að prófa sjósund – þeir sem þora! Eftir mót er boðið uppá grillaðar pylsur eða hamborgara.
Stund: Mánudagurinn 11. júní kl. 18:00
Staður: Fjaran á Álftanesi (mæting við félagshús)
Hvert félag þarf að greiða 5.000.- í þátttökugjald og skráning fer fram á netfanginu [email protected] eða á heimasíðu félagsins (undir æskulýðsnefnd). Hægt er að skrá í eitt lið eða fleiri í allar keppnir eða eitt lið í eina keppni. Nóg er að skrá nafn félagsins til að byrja með en nöfn keppanda þurfa að berast í vikunni fyrir mót.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH