Örfáir miðar eftir
Á morgun fer fram í Fákaseli sýnikennslan Nútíma reiðlist, sem haldin er af Julio Borba í samstarfi við Gangmylluna og Hafliða Halldórsson. Um kvöldið verður síðan Gala Show þar sem mikið verður um dýrðir.
Fram koma margir frábærir knapar og hestar. Miðasala hefur farið fram í gegnum tix.is.
Nú er það svo að einungis örfáir miðar eru eftir og því óvíst að miðasala verði við hurð. Aðstandendur sýningarinnar vilja koma á framfæri miklum þökkum fyrir góðar viðtökur og hlakka þeir til að sýna listir sýnar á reiðhallargólfinu á morgun. Sýnikennslan hefst klukkan 11:00 og er átælað að henni ljúki klukkan 16:00. Galashowið hefst klukkan 20:00 og er áætlað að því ljúki klukkan 22:00.
Í Fákaseli er úrval matar og drykkjar!
Á myndinni eru nokkrir af þeim knöpum sem taka þátt í sýningunni á morgun en þeir eru frá vinstri talið.
Hanne Smidesang, Filippa Montan, Helga Una Björnsdóttir, Jakob Svavar Sigurðsson, Olil Amble, Hulda Gústafsdóttir, Nils- Christian Larsen, Julio Borba, Hinrik Bragason, Bergur Jónsson og Ragnhildur Haraldsdóttir.
Eiðfaxi verður á staðnum og mun flytja fréttir af viðburðinum á vefsíðu og í næsta Eiðfaxa Vetur, sem kemur út í byrjun mars.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH