Óskar frá Blesastöðum á Ræktun 2010
Stólpagæðingurinn Óskar frá Blesastöðum kemur fram á Ræktun 2010 á morgun laugardaginn 24.apríl en sýningin hafst kl.20.00.
Óskar vakti mikla athygli síðasta sumar þargar hann var sýndur í kynbótadómi en hann hlaut 8,22 í aðaleinkunn og þar af 9,0 fyrir tölt, brokk, vilja/geðslag og fegurð í reið og 9,5 fyrir hægt tölt og stökk. Óskar er undan Töfra frá Kjartansstöðum og Váksdótturinni Dúfu frá Skeiðháholti en hryssur undan Vák hafa verið að gera það gott í ræktun.
Annar hestur undan Váksdóttur kemur fram en það er Loki frá Selfossi en hann hefur hlotið 8,23 í aðaleinkunn og þar af 9,0 fyrir tölt, brokk, vilja/geðslag og feg.reið en 9,5 fyrir stökk. Loki sló rækilega í gegn í Meistaradeild Vís þar sem Sigurður Sigurðarsson keppti á honum í fjórgangi og þrátt fyrir ungan aldur þá komust þeir félagar á verðlaunapall í mjög sterkri fjórgangskeppni. Loki er eins og fyrr segir undan Váksdótturinni Sturlu frá Brúnastöðum og Smára frá Skagaströnd.
Margareterhof er selt
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Dagur með hestatannlækni