Óskar frá Breiðstöðum
Óskar frá Breiðstöðum er einn fremsti klárhestur landsins
Hann hlaut á kynbótasýningu í vor hæsta hæfileikadóm klárhesta sem gefinn var á árinu, 8.62.
Þar af hlaut hann 9.5 fyrir tölt, fegurð í reið, vilja og stökk og 9.0 fyrir brokk, hægt tölt og hægt stökk.
Hann er í fremstu röð keppnishesta, og hefur m.a. skorað 8.83 í slaktaumatölti og 8.0 í fjórgangi.
Hann er einstaklega geðgóður og samvinnuþýður hestur, með sterkar ættir á bakvið sig, en hann er undan Herjólfi frá Ragnheiðarstöðum og Fantasíu frá Breiðstöðum.
Óskar er á húsmáli á Króki í Ásahreppi og verður í sumar, verð á tollinum er 125.000 með öllu (ein sónarskoðun, girðingargjald og vsk innifalið)
Upplýsingar gefur Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir 8945102
Vilt þú auglýsa stóðhesta á vefsíðu Eiðfaxa? Vertu í sambandi í síma 5379200 eða sendu email á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH