Óskasteinn og Arion á Stóðhestaveislu fyrir tíu árum

  • 26. febrúar 2024
  • Sjónvarp Fréttir

Þétt setin Samskipahöllin á stóðhestaveislu árið 2015. Ljósmynd: Þröstur Gestsson

Upphitun fyrir Stóðhestaveislu

Stóðhestaveislan er viðburður sem hestamenn láta ekki framhjá sér fara. Framundan er 15 stóðhestaveislan en árin 2020-2021 fór hún fram undir nafninu Ræktunardagur Eiðfaxa og var haldinn í Víðidalnum, ástæða þess var Covid tímabilið þar sem ekki var hægt að halda fjölmennan innanhúsviðburð.

Við hefjum upphitun fyrir veisluna með því að rifja upp lokaatriðið fyrir 10 árum. Það var ekki af verri endanum en þar komu fram tveir höfðingar úr röðum stóðhesta sem báðir eru fallnir, þeir Óskasteinn frá Íbishóli og Arion frá Eystra-Fróðholti með knöpum sínum Magnúsi Braga Magnússyni og Daníel Jónssyni.

Stóðhestaveislan fer fram þann 13. apríl í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli, þann dag kemur biblía hrossaræktenda, Stóðhestabókin, í hendur veislugesta.

Miðasala verður nánar auglýst síðar.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link