Óskum hestafólki gleðilegra jóla
Blaðið Hestar og hestamenn hóf göngu sína í maí 2009. Árið 2011 verður því þriðja almanaksár blaðsins, en það verður tveggja ára í maí í vor. Blaðinu hefur verið afar vel tekið. Allir kaupendur Viðskiptablaðsins fá það sent í hverri viku. Auk þess er hægt að kaupa séráskrift að Hestum og hestamönnum. Séráskrifendur eru nú um tvö þúsund. Sem þýðir að lesendur Hesta og hestamanna eru sjö til níu þúsund. Hestar og hestamenn þakka lesendum frábærar móttökur og samveruna á árinu og óska þeim gleðilegra jóla.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári