Óvenjuleg umhyggja Þrymils
Gletta lá afvelta í girðingu hjá ungfolanum Þrymil. Þrymill hafði, fullur ábyrgðartilfinningar, reynt að reisa hana við með ráðum án þess að hafa erindi sem erfiði. Þegar Ólafur Einarsson aðstoðaði Glettu aftur á lappir tók Þrymill sig til og gerði varanlegar ráðstafanir svo önnur af hans kæru vinkonum myndu ekki lenda í að festast í þessari sömu þúfuskömm.
Frásagnir sem þessar, sem lesa má hér í fullri lengd, sýnir hið einstaka atferli hestanna okkar.
Við viljum endilega heyra fleiri slíkar og því óskar Eiðfaxi eftir sögum um óvenjulega hegðun og uppátæki hrossa.
Ef þið lumið á slíkri sögu sem þið viljið deila, vinsamlegast hafið samband í gegnum netfangið [email protected].
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV