Pála efsta hrossið í Þýskalandi

  • 21. desember 2022
  • Fréttir
Á eftir Íslandi eru flest hross staðsett í Þýskalandi.

FEIF heldur utan um alls konar staðreyndir og tölfræði tengda aðildarlöndum sínum.  Samkvæmt tölum FEIF er Þýskaland næst á eftir okkur þegar kemur að skráðum hrossum á lífi. 57.911 hross eru sögð vera í Þýsklandi en það er um 43% af þeim fjölda sem er skráður hér á landi. Samkvæmt þessu hefur hrossum fækkað í Þýskalandi en í fyrra voru þau rúmlega 66 þús. en hér fyrir neðan er hægt að sjá þróun á fjöldra skráðra hrossa í Þýskalandi síðustu fimm ár.

Fjöldri skráðra hrossa á lífi í Þýskalandi síðast liðinn 5 ár

 

145 hross voru sýnd í fullnaðardóm í Þýskalandi í ár á fimm kynbótasýningum. Fækkun hefur verið í fjölda hrossa og fjölda sýninga en í fyrra, 2019 og 2018 voru haldnar níu sýningar. 33 hross hlutu fyrstu verðlaun í Þýskalandi og eru 16 af þeim fædd í Þýsklandi. Flest hross voru sýnd á kynbótasýningunni í Lingen sem haldin var 20. – 22. júní. Dómarar á sýningunni voru Þorvaldur Kristjánsson, Jens Füchtenschnieder og Marlise Grimm. Athygli vekur þegar allur listinn er skoðaður að öll hrossin voru bara sýnd einu sinni í fullnaðardóm.

 

 

Fjögur efstu hrossin sem sýnd voru í Þýskalandi voru þrjár hryssur og einn stóðhestur öll frá Kronshof en Kronshof er það ræktunarbú í Þýskalandi sem skilaði flestum hrossum til dóms. Hæst dæmda hrossið í Þýskalandi er Pála vom Kronshof en hún er fimm vetra og hlaut fyrir sköpulag 8,26 og fyrir hæfileika 8,68 sem gerir 8,54 í aðaleinkunn. Pála er undan Óðni vom Habichtswald og Jódísi vom Kronshof.

Ólína vom Kronshof hlaut hæstu hæfileikaeinkunnina en hún hlaut fyrir hæfileika 8,70, fyrir sköpulag 8,14 sem gerir 8,51 í aðaleinkunn. Ólína er sex vetra og er undan Kolfinnu vom Kronshof og Álfasteini frá Selfossi.

 

Hæstu sköpulagseinkunnina hlaut Ágúst fra Eyfjörd en hann hlaut fyrir sköpulag 8,45 og fyrir hæfileika 8,18 sem gerir 8,28 í einkunn. Ágúst er undan Ágústínusi frá Melaleiti og Drottningu frá Eystra-Fróðholti. Ágúst er danskt fæddur.

 

No photo description available.

 

Meðalaldur þeirra hrossa sem hlutu fullnaðardóm í Þýskalandi er 7,13 ár (miðgildi er 7,0 ár). Meðaltal sköpulagseinkunnar er 7,89, hæfileikaeinkunnar er 7,69 og aðaleinkunnar 7,78. Tólf hross voru sýnd sem voru 1o vetra eða eldri.

Þórður Þorgeirsson sýndi flest hrossin eða 31 talsins en næstur á eftir honum er Thorsten Reisinger með 18 hross.

 

Tíu hæst dæmdu hrossin í Þýskalandi

Fæðingarnúmer  Nafn Uppruni í þgf. Sýnandi Aðaleinkunn
DE2017234955 Pála Kronshof Kronshof GbR 8.54
DE2016234183 Ólína Kronshof Kronshof GbR 8.51
DE2015234422 Náttdís Kronshof Kronshof GbR 8.4
DE2016134224 Óríon Kronshof Kronshof GbR 8.4
IS2016287573 Drift Austurási Kronshof GbR 8.39
BE2016101986 Vídalín frá Branstöðum Þórður Þorgeirsson 8.38
IS2016201032 Alda Margrétarhofi Kronshof GbR 8.35
DK2016100029 Ágúst Eyfjörd Sigurður Narfi Birgisson 8.28
IS2015266050 Ronja Grenivík Þórður Þorgeirsson 8.23
IS2016177621 Moli Skálafelli I Húni Hilmarsson 8.22

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link