Páskatölt Dreyra
Hið árlega páskatölt Dreyra verður haldið í Æðarodda laugardaginn 7. mars n.k.
Keppt verður í teymingaflokki, barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki, öðrum flokki og opnum flokki. Skráning í síma 8609794 (Svandís) fimmtudaginn 5. mars frá kl. 19:00-22:00, eða á netfangið [email protected], þar sem fram koma upplýsingar um nafn knapa og nafn, aldur og lit á hrossi, aðildarfélag og á hvora höndina skal sýnt, fyrir miðnætti 5. mars. Skráningargjöld eru kr. 1.500.- fyrir fullorðna, kr. 1.000.- fyrir unglinga og ungmenni og kr. 0.- fyrir börn og teymingaflokk og greiðast þau á staðnum á mótsdag, mótið hefst kl. 12:00. Mótið er opið öllum. Gómsæt verðlaun í boði!
Kaffisala á staðnum.
Hlökkum til að sjá þig.
Nefndin
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH