Peningaverðlaun á opna Gæðingamótinu á Flúðum
Opið gæðingamót verður haldið 23.-26.júlí næstkomandi á Flúðum en það eru hestamannafélögin þrjú í uppsveitum Árnessýslu sem standa að mótinu Smári, Logi og Trausti. Þetta mót hefur verið mjög vaxandi undanfarinn ár og er létt stemning í bland við frábæra hesta í fyrirrúmi.
Helstu styrktaraðilar mótsins eru Gröfutækni og Dýralæknirinn Flúðum en þessir aðilar hafa gefið að út að þeir muni veita peningaverðlaun bæði í tölti T3 18 ára og eldri og 100 metra skeiði. Sigurvegari í hvorri grein um sig fær hvorki meira né minna en 100.000 krónur í sigurlaun.
Skráning á mótið er hafinn og lýkur henni á miðnætti þann 20.júlí.
Í samtali Eiðfaxa við Braga Viðar Gunnarsson formann Hestamannafélagsins Smára segist hann vera spenntur fyrir mótinu sem hafi stækkað ár frá ári. Þá lofar hann því að vel verði tekið á móti öllum þeim sem geri sér ferð á Flúðir þessa helgi bæði áhorfendum og keppendum.
Flokkar í boði: A-flokkur , A-flokkur áhugamanna, A-flokkur Ungmenna, B-flokkur, B-flokkur Áhugamanna, Ungmennaflokkur, Unglingaflokkur, Barnaflokkur,
Tölt T3 18 ára og eldri, Tölt T3 17 ára og yngri, Tölt T7 Börn og 100 metra skeið.
Skráningargjald í eldri flokka er 4500 kr og í yngri flokka 3500kr
Skráningargjald í skeið er 4500 kr
Skráning fer fram inn á sportfeng. Skráning hefst 17 júlí og lýkur 20 júlí að miðnætti.
Mótanefnd áskilur sér þann rétt að fella niður flokka ef ekki er næg þátttaka.

Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Kristín tekur við formennsku í Sörla