Pernille efst í fimmgangnum
Það var Pernille Lyager Möller sem kom, sá og sigraði í fimmgangnum í Vesturlandsdeildinni í kvöld. Randi Holaker á Þyt frá Skáney leiddi eftir forkeppni með 6.47 í einkunn. Pernille sem kom inn í úrslit jöfn Jakobi Sigurðssyni í 3.-4. sæti en eftir jafna og góða sýningu í úrslitum endaði hún efst með 6.55 í einkunn.
Eins og í fjórgangum fyrir hálfum mánuði var það lið Snóks/Cintamani sem hreppti liðaskjöldinn fyrir bestan samanlagðan árangur kvöldsins en liðið halaði inn 35.5 stigum og situr eitt efst með 79.5 stig eftir 2 mót, skammt undan er þó lið Leiknis með 70.5 stig en þessi lið hafa tekið nokkuð afgerandi forystu í upphafi mótaraðarinnar en þó er nóg eftir af stigum í pottinum.
Þá er staðan í einstaklingskeppninni galopin en einungis munar 4 stigum á knapanum í 1.sæti og þeim í 7.sæti. En það er Benedikt Þór Kristjánsson sem leiðir með 11 stig, annar er svo Jakob Svavar Sigurðsson með 10.5 stig.
Hér koma svo niðurstöður kvöldsins.
Úrslit
1 – Pernille Lyager Möller – Álfsteinn frá Hvolsvelli – Eques – 6,55
2 – Randi Holaker – Þytur frá Skáney – Leiknir – 6,48
3 – Sigurður Sigurðarson – Þengill frá Þjóðólfshaga – Hjálmhestar – 6,45
4-5 – Máni Hilmarsson – Prestur frá Borgarnesi – Hjálmhestar – 6,07
4-5 – Jakob Svavar Sigurðsson – Straumur frá Skrúð – Snókur/Cintamani – 6,07
Forkeppni
1 – Randi Holaker – Þytur frá Skáney – Leiknir – 6,47
2 – Sigurður Sigurðarson – Þengill frá Þjóðólfshaga 1 – Hjálmhestar – 6,37
3-4 – Jakob Svavar Sigurðsson – Straumur frá Skrúð – Snókur/Cintamani – 6,27
3-4 – Pernille Lyager Möller – Álfsteinn frá Hvolsvelli – Eques – 6,27
5 – Máni Hilmarsson – Prestur frá Borgarnesi – Hjálmhestar – 6,07
6 – Benedikt Þór Kristjánsson – Váli frá Eystra-Súlunesi – Snókur/Cintamani -6,0
7 – Siguroddur Pétursson – Syneta frá Mosfellsbæ – Berg/Hrísdalur – 5,97
8 – Haukur Bjarnason – Gýgur frá Skáney – Leiknir – 5,93
9 – Styrmir Sæmundsson – Ábóti frá Söðulsholti – Trefjar – 5,60
10 – Iðunn Silja Svansdóttir – Fjöður frá Ólafsvík – Trefjar – 5,73
11 – Hanne Smidesang – Ægir frá Efri-Hrepp – Snókur/Cintamani – 5,47
12 – Guðmundur M. Skúlason – Krapi frá Steinum – Eques – 5,20
13 – Guðbjartur Þór Stefánsson – Prins frá Skipanesi – Eques – 4,87
14 – Konráð Valur Sveinsson – Forkur frá Laugavöllum – Leiknir – 4,80
15 – Jón Bjarni Þorvarðarson – Haki frá Bergi – Berg/Hrísdalur – 4,63
16 – Þorgeir Ólafsson – Stirnir frá Ferjubakka 3 – Hjálmhestar – 4,63
17 – Halldór Sigurkarlsson – Kolbrá frá Söðulsholti – Trefjar 4,40
18 – Anna Dóra Markúsdóttir – Hvöss frá Bergi – Berg/Hrísdalur – 0 (tapaði skeifu)
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH