Pétur Vopni vel vopnaður

  • 25. febrúar 2011
  • Fréttir

Pétur Vopni og Silfurtoppur frá Oddgeirshólum. Myndina tók Friðgeir Guðmundsson.

Sigraði óvænt í tölti í KEA mótaröðinni

RÓSBERG ÓTTARSSON:

Önnur keppnisgrein KEA mótaraðarinnar fór fram í Top Reiter höllinni kvöld og var þá komið að töltinu.  35 hross voru skráð til leiks en tvö forfölluðust og 33 luku keppni. Líkt og í fjórganginum var Eyjólfur Þorsteinsson efstur eftir forkeppnina en nú á Hlekk frá Þingnesi og hlutu þeir 6,80 í einkunn. Annar var Þorbjörn Hreinn Matthíasson á Tý frá Litla-Dal með 6,67 og þriðji Pétur Vopni Sigurðsson með 6,50 á Silfurtoppi frá Oddgeirshólum. Síðastur inn í A úrslit var Jón Björnsson á Blæ frá Kálfholti með 6,27 í einkunn.

Í B úrslitum börðust Baldvin Ari Guðlaugsson á Röst frá Efri – Rauðalæk, Stefán Friðgeirsson á Saum frá Syðra-Fjalli, Helga Árnadóttir á Þrumu frá Akureyri, Guðmundur Karl Tryggvason á Flugari frá Króksstöðum og Þórhallur Dagur Pétursson á Fonti frá Feti um sæti í A úrslitum. Svo fór að Helga Árnadóttir á Þrumu sigraði B úrslitin eftir æsispennadi keppni og hlaut 6,83 í einkunn. Í A úrslitunum var mikil dramatík og í hraðabreytingunum gerðist það að skeifa fór undan Hlekk og ljóst var að Eyjólfur varð að sjá á eftir sigrinum. Bjuggust flestir við að Þorbjörn Hreinn væri þar með kominn með sigurinn en jöfn og góð sýning Péturs Vopna varð til þess að hann skaust uppfyrir Þorbjörn og tryggði sér sigurinn.

Við gripum Pétur Vopna glóðvolgan og í sigurvímu eftir verðlaunaafhendinguna. „ Ég er virkilega sáttur með sigurinn þó svo að það hefði verið skemmtilegra ef að Eyjólfur hefði getað klárað. Ég keypti Silfurtopp þegar hann var á fjórða vetur og tamdi hann sjálfur. Það hefur gengið ágætlega með hann eftir að ég fór að keppa á honum og hann hefur farið yfir sjöuna áður,“ sagði Pétur glaðbeittur á svip. Silfurtoppur er undan Aroni frá Strandarhöfði og Gulltoppu frá Oddgeirshólum, Kolgrímsdóttur frá Kjarnholtum.

A – úrslit:
    •    Pétur Vopni Sigurðsson, Silfurtoppur frá Oddgeirsshólum 7,06
    •    Þorbjörn Hreinn Matthíasson, Týr frá Litla –Dal 6,89
    •    Helga Árnadóttir, Þruma frá Akureyri 6,56
    •    Jón Björnsson, Blær frá Kálfholti 6,22
    •    Eyjólfur Þorsteinsson, Hlekkur frá Þingnesi 4,61 losnaði skeifa
    •   
B – úrslit:
    •    Baldvin Ari Guðlaugsson, Röst frá Efri – Rauðalæk 6,50
    •    Stefán Friðgeirsson, Saumur frá Syðra – Fjalli 6,44
    •    Þórhallur Dagur Pétursson, Fontur frá Feti 6,39
    •    Guðmundur Karl Tryggvason, Flugar frá Króksstöðum 6,28
    •   
Stigahæstu knapar:
    •    Eyjólfur Þorsteinsson 14 stig
    •    Helga Árnadóttir 11 stig
    •    Pétur Vopni Sigurðsson 10 stig
    •    Stefán Friðgeirsson 10 stig
    •    Þorbjörn Hreinn Matthíasson 8 stig

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link