Prins frá Knutshyttan hæst dæmda kynbótahross á HM í ár-

  • 6. ágúst 2011
  • Fréttir
Prins frá Knutshyttan hæst dæmda kynbótahross á HM í ár-

Prins fra Knutshyttan er sigurvegari elsta flokk stóðhesta. Að baki hins forkunnarfagra Prins liggja góðar ættir en hann er undan Flipa fran Österaker sem er undan Hrafni frá Holtsmúla og Von frá Vindheimum. Móðir Prins er  Nótt fran Knutshyttan sem er undan fyrrverandi heimsmeistaranum Baldri frá Bakka og Brún frá Kúskerpi.

Í dag hækkaði Prins einkunn sína fyrir stökk frá 8,5 í 9,0 og lýkur því mótinu með einkunnina 8,65 fyrir hæfileika, glæsilega 8,81 fyrir byggingu og 8,72 í aðaleinkunn og er því hæst dæmda kynbótahross Heimsmeistaramótsins í ár.

Teigur  vom Kronshof var í öðru sæti með  einkunnina 8,61, þar af 8,84 fyrir hæfileika og Pá fra Eyfjörd var í því þriðja með 8,58 í aðaleinkunn, þar af 8,68 fyrir hæfileika og 8,43 fyrir byggingu.

Fulltrúi Íslands, Glotti frá Sveinatungu, varð fjórði með  8,52 í aðaleinkunn en hann hlaut hæstu hæfileikaeinkunn kynbótahrossa í ár, 8,88.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link