Punktamót á Dalvík og Akureyri
Norðlendingar ætla mikinn á Íslandsmóti. Á myndinni er Svavar Örn Hreiðarsson og Sproti frá Sauðholti ljósmynd: Svana Karlsdóttir
Hestamannafélögin Hringur og Léttir munu standa að punktamótum fyrir Íslandsmót sem hér segir,
15.júní Hlíðarholtsvöllur – Akureyri
F1 fimmgangur- ungmennaflokkur
F1 fimmgangur- opinn flokkur
T2 slaktaumatölt- ungmennaflokkur
T2 slaktaumatölt- opinn flokkur
Skráningarfrestur til miðnættis 13.júní, afskráningar þurfa að berast á [email protected] ‚ skráningargjöld eru ekki endurgreidd eftir að ráslisti hefur verið birtur. Senda þarf kvittun á [email protected]
19-20 júní Hringsholt – Dalvík
Gæðingakeppni Hrings
T1 tölt og skeið verður á því móti.
Skráningarfrestur til miðnættis 16.júní, afskráningar þurfa að berast á [email protected] , skráningargjöld eru ekki endurgreidd eftir að ráslisti hefur verið birtur. Senda þarf kvittun á [email protected]
- júní Hringsholt – Dalvík
V1 fjórgangur- ungmennaflokkur
V1 fjórgangur- opinn flokkur
Skráningarfrestur til miðnættis 20.júní, afskráningar þurfa að berast á [email protected] , skráningargjöld eru ekki endurgreidd eftir að ráslisti hefur verið birtur. Senda þarf kvittun á [email protected]
3 dómarar dæma mótin og ekki verða riðin úrslit. Hver skráning kostar 4500 kr. og er skráning á
https://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add
Upplýsingar fyrir mót á Akureyri gefur Andrea s.8646430 og fyrir mót á Dalvík gefur Felix s.8989895
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH