Punktur leikur í Þjóðleikhúsinu
Góðir leikarar geta brugðið sér í allra kvikinda líki en að leikurum Þjóðleikhússins ólöstuðum…
gæti sennilega enginn farið betur með titilhlutverk leikritsins Finnski hesturinn en hann Punktur sem hér sést ganga á sviðið.
Punktur þótti sýna einskæra fagmennsku á æfingu í gær þrátt fyrir talsverðan hamagang. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem lifandi hestur stígur á svið Þjóðleikhússins, en frumsýnt verður 15. október.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH