Ræktendur verða að vera skráðir í BÍ til að hljóta tilnefningu

  • 8. desember 2022
  • Fréttir
Forsendubreyting mun verða á næsta ári til að hljóta tilnefningu sem Ræktunarbús ársins

Sú breyting verður á næsta ári að til þessa að ræktendur geti verið tilnefnt til Ræktunarbús ársins þurfa ræktendur að vera skráðir í Bændasamtök Íslands.

Þessi forsendubreyting var rædd og ákveðin á búgreinaþingi í mars í fyrra. Var þetta ár látið tíða með óbreyttu fyrirkomulagi en nú er komið að því að innleiða þessa breytingu og virkja hana á næsta ári.

Þetta kom fram í ávarpi Sveins Steinarsson formanns félags hrossabænda og fagráðs í hrossaræktar á Haustráðstefnu Fagráðs í hrossarækt í lok nóvember. “Þetta mun styrkja okkar starf og auðvitað þurfum við að vera þátttakendur í starfinu sem erum í fremstu röð,” bætti hann við að lokum.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link