Ræktun 2023
Stórsýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands RÆKTUN 2023 sem fram fer í Horsedayhöllinni á Ingólfshvoli laugardaginn 29.apríl n.k. kl. 20:00
Eins og verið hefur þá verður áherslan á sýngingar ræktunarbúa, afkvæmasýningar hryssna og stóðhesta ásamt hópa einstaklingssýndra hryssna og stóðhesta.
Þetta er í 23.sinn sem þessi sýning er haldin og hefur hún verið vel sótt undanfarin ár. Mjög spennandi ræktunarbú og afkvæmahópar hafa tilkynnt um þáttöku sína. Þetta er frábært tækifæri til að koma hryssum, stóðhestum, ræktun sinni og/eða afkvæmahópi á framfæri.
Hafir þú áhuga á að koma þínum hrossum á framfæri er hægt að hafa samband við
Magnús: 8933600
Eyrúnu: 8499412
Kveðja
Hrossaræktarsamtök Suðurlands
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH