Ræktunarbú á landsmóti
Sýningar ræktunarbúa skipa heiðurssess á landsmótum hestamanna og á LM2012 í Reykjavík verður engin breyting þar á. Stefnt er á að tilhögun sýninga verði með svipuðu sniði og verið hefur á undanförnum mótum, þ.e. að þátttaka verði bundin við 10 ræktunarbú. Ræktunarbúin eru á dagskrá mótsins föstudagskvöldið 29. júní milli kl. 21:00 og 22:00 og áhorfendum verða boðið að velja bestu ræktunarbússýninguna með símakosningu.
Það ræktunarbú sem flest atkvæði hlýtur ávinnur sér þann heiður að koma fram á laugardagskvöldinu í skemmtidagskrá kvöldvöku. Sýningartími á hvert bú er 5 mínútur. Útfærsla sýningar er alfarið á ábyrgð forráðamanna. Fótaskoðun verður viðhöfð og gilda reglur gæðingakeppni þar um, auk þeirra viðmiðana um heilbrigði sem mótstjórn LM setur. Að lágmarki skulu 5 hross sýnd og þurfa þau að vera frá sama lögbýli, eða fædd meðlimum sömu fjölskyldu.
Þátttakendur velja tónlist sjálfir og hafa samráð við þul hvernig búið skuli kynnt. Ein síða í mótaskrá fylgir til kynningar á búinu og þeim hestum sem koma fram í sýningunni en forsvarsmenn búanna verða að skila inn sinni síðu fyrir 11. júní. Að auki geta sýnendur nýtt risaskjá við völl meðan á sýningu stendur.
Ræktunarbúi ársins 2011 er boðin þátttaka. Dregin verða svo 10 bú til þátttöku úr innsendum umsóknum. Skráningargjaldið er kr.100.000.
Þeir hrossaræktendur sem hafa áhuga á að koma fram með sinn hóp á Landsmóti 2012 eru beðnir að senda inn umsókn um slíkt og athugið að gefa upp nákvæmar upplýsingar um hvaða hross er stefnt með á sýninguna.
Umsóknarfrestur er til 1. júní og verður tilkynnt þann 4. júní hvaða ræktunarbú munu taka þátt. Umsóknir skulu sendar á netfangið [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH