Ræktunarbússýningar á Ræktun Norðurlands 2010

  • 23. mars 2010
  • Fréttir
Ræktunarbússýningar á Ræktun Norðurlands 2010

Styttist nú óðfluga í sýninguna Ræktun Norðurlands 2010. Útlit er fyrir að nokkrir magnaðir hópar frá hrossaræktunarbúum verði meðal sýningaratriða. Þar má nefna Garð í Hegranesi, en þaðan hefur hver gæðingurinn af öðrum komið nú á síðustu árum, þá verður hópur frá hinum þekktu ræktunarbúum Vatnsleysu í Skagafirði og Lækjarmóti í Vestur-Hún. Síðan er von á frumlegri sýningu úr heimsmeistararæktuninni á Íbishóli. Síðast en ekki síst skal nefna tvö bú sem bæði hömpuðu titlinum “Ræktunarbú ársins 2009” hvort á sínu svæði en það eru Steinnes í A-Hún. og Grafarkot í V-Hún.

Fleiri fréttir af sýningunni munu birtast á vefmiðlunum þegar nær dregur, en sýningin fer fram n.k. laugardagskvöld (27. mars) í reiðhöllinni Svaðastöðum kl: 20:00.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link