Ræktunardagur Eiðfaxa – Fyrsta kynning á veisluatriðum
Ræktunardagur Eiðfaxa verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 9.maí og er undirbúningur í fullum gangi, mikill áhugi er meðal ræktenda og stóðhestaeigenda að taka þátt og nú þegar hafa hrossaræktarbú og stóðhestar boðað komu sína. Hér fyrir neðan kynnum við þrjú af þeim atriðum sem staðfest hafa mætingu.
Eins og áður hefur verið auglýst mun verða sýnt beint frá deginum um heim allan og verður honum lýst á þremur tungumálum íslensku, þýsku og ensku.
Ljósvaki frá Valstrýtu er nafntogaður gæðingur með hvorki meira né minna en 8,75 fyrir hæfileika sem klárhestur og þar af einkunnina 10,0 fyrir tölt og stökk. Þá hefur hann gert það gott í B-flokki og hlaut m.a. einkunnina 9,00 í A-úrslitum í B-flokki á síðasta ári. Ljósvaki mun að sjálfsögðu koma fram á ræktunardegi Eiðfaxa.
Framtíðaræktunarhryssur Hjarðartúns. Glæsilegar hryssur sem allar eiga það sameiginlegt að verða í framtíðinni ræktunarhryssur í Hjarðartúni. Í hópnum má finna hryssur með m.a. 9,5 fyrir tölt, fegurð í reið og skeið. Það verður spennandi að sjá hvaða stjörnur leynast í þessum hópi.
Þröstur frá Kolsholti II vakti verðskuldaða athygli strax fjögurra vetra á LM2018 fyrir mikið rými og vasklega framgöngu. Hann hefur hlotið í hæsta dómi einkunnina 9,5 fyrir eiginleikanna tölt, brokk og vilja og geðslag. Þröstur er á meðal þeirra stóðhesta sem staðfest hefur verið að mæti á ræktunardag Eiðfaxa.
Fleiri atriði verða kynnt hér á vef Eiðfaxa næstu daga.
Þeir hrossaræktendur sem hafa áhuga á að taka þátt í ræktunardegi Eiðfaxa er bent á að senda tölvupóst á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH