Ræktunardagur Eiðfaxa – Hátíðarhöld sem enginn má missa af
Oragnisti og Árni Björn verða í Víðidalnum á laugardaginn á Ræktunardegi Eiðfaxa
Ræktunardagur Eiðfaxa verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 9.maí og hefst hann klukkan 14:00. Undirbúningur í fullum gangi, mikill áhugi er meðal ræktenda og stóðhestaeigenda að taka þátt og nú þegar hafa hrossaræktarbú og stóðhestar boðað komu sína. Eins og staðan er núna spáir glaða sólskini þennan dag.
Hér fyrir neðan kynnum við þrjú af þeim fjölmörgu og fjölbreytilegu atriðum sem staðfest hafa mætingu.
Eins og áður hefur verið auglýst mun verða sýnt beint frá deginum um heim allan og verður honum lýst á þremur tungumálum íslensku, þýsku og ensku.
Organisti frá Horni er landsþekktur gæðingur sem hlotið hefur 8,72 í aðaleinkunn í kynbótadómi. Þar af 9,5 fyrir vilja og geðslag og 9,0 fyrir tölt,brokk,skeið,stökk og fegurð í reið. Organisti mun koma fram á ræktunardegi Eiðfaxa.
Jarl frá Árbæjarhjáleigu II hefur gert það gott á öllum sviðum hestamennskunnar bæði í kynbótadómi, íþróttakeppni og gæðingakeppni. Á síðastliðnu Landsmóti hlaut hann 1.verðlaun fyrir afkvæmi. Ræktendur Jarls ætla að mæta með nokkur áður óséð afkvæmi hans og hver veit nema hann mæti einnig sjálfur á svæðið.
Bósi og Dáti frá Húsavík eru náskyldir 1.verðlauna stóðhestar og munu þeir koma fram saman á ræktunardaginn. Það sem meira er að knapar á þeim verða systurnar Thelma Tómasdóttir og Sigrún Högna Tómasdóttir, bráðflinkir ungir knapar á glæsilegum stóðhestum.
Fleiri atriði verða kynnt hér á vef Eiðfaxa næstu daga. Takið daginn frá því enginn áhugamaður um íslenska hestinn má missa af þeirri veislu sem stefnir í.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH