Rafræn stóðhestabók
Stóðhestabók Eiðfaxa kom út í byrjun maí og er nú til á heimilum og í hesthúsum þúsunda hestamanna vítt um landið. Eiðfaxi ætlar þó ekki að láta þar við sitja heldur ætlum við að gefa stóðhestabókina út rafrænt á vefnum svo allir geti verið fljótir að fletta upp á stóðhestum í gegnum síma sína og tölvur.
Í rafrænu stóðhestabókinni verður hægt að skoða myndbönd af hestum og hvetjum við þá eigendur stóðhesta sem vilja nýta sér það og hafa ekki nú þegar sent inn myndbönd að senda á [email protected] fyrir sunnudaginn 6.júní.
Rafræna stóðhestabókin verður svo aðgengileg á vef Eiðfaxa öllum hestamönnum til gagns og gamans.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH