Ragnhildur og Vákur yfir áttuna í úrslitum í fjórgangi meistara
Það má segja að úrslitin í fjórgangi (V1) í meistaraflokki hafi verið í háum gæðaflokki eins og sést á einkunnum hér fyrir neðan. Ragnhildur Haraldsdóttir stóð þó uppi sem sigurvegari á Váki frá Vatnsenda með í einkunn 8,03 í öðru sæti varð Jakob Svavar og Hálfmáni frá Steinsholti með 7,90 og í þriðja sætinu Jóhanna Margrét Snorradóttir á Bárði frá Melabergi með 7,87 í einkunn.
A-úrslit fjórgangur (V1) meistaraflokki
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Ragnhildur Haraldsdóttir / Vákur frá Vatnsenda | 8,03 |
| 2 | Jakob Svavar Sigurðsson / Hálfmáni frá Steinsholti | 7,90 |
| 3 | Jóhanna Margrét Snorradóttir / Bárður frá Melabergi | 7,87 |
| 4 | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir / Óskar frá Breiðstöðum | 7,73 |
| 5 | Hanna Rún Ingibergsdóttir / Grímur frá Skógarási | 7,57 |
| 6 | Helga Una Björnsdóttir / Hnokki frá Eylandi | 7,47 |
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Styttu haustið með EiðfaxaTV