Samskipadeildin - Áhugamannadeild Spretts Ráslisti fyrir fimmgang Málningar

  • 16. febrúar 2022
  • Fréttir
Equsanadeildin

Þá er komið að öðru mótinu í áhugamannadeild Equsana og Spretts en að þessu sinni verður keppt í fimmgangi Málningar, fimmtudaginn 17. febrúar. Húsið opnar kl. 18:00 og mótið hefst stundvíslega kl. 19:00.

Í fyrra var það Sigurður Halldórsson sem sigraði á Gusti frá Efri-Þverá en þeir eru jafnframt skráðir til leiks í ár og munu gera allt til að verja titil sinn. Sigurður handleggsbrotnaði fyrir rétt rúmri viku síðan en hann ætlar ekki að láta það stoppa sig í að reyna verja titilinn. Af úrslitahestunum frá því í fyrra eru líka skráð til leiks Ríkharður Flemming Jensen með Myrkva frá Traðarlandi en þeir enduðu í 3-4 sæti og Kristín Ingólfsdóttir með hann Tón sinn frá Breiðholti en þau enduðu í 5 sæti. Margir nýjir knapar eru skráðir til leiks og keppa í fyrsta skipti í fimmgangi deildarinnar og verður spennandi að sjá hvort þeir blandi sér í toppbaráttuna með sína hesta. Það stefnir í spennandi keppni og við hvetjum áhugasama að mæta í Samskipahöllina á fimmtudaginn og fylgjast með. Einnig verður Alendis með beina útsendingu frá keppninni.

Beina útsendingu má nálgast HÉR

Áður en keppni hefst verður veitingasala í veislusal Spretts og í boði verður Lasagne.

Við minnum á að grímuskylda er inn í höllinni og biðjum við áhorfendur að virða hana.

Hér koma ráslistar fyrir fimmtudaginn:

Nr. Holl Knapi Hestur Lið
1 1 Petra Björk Mogensen Björk frá Barkarstöðum Ganghestar
2 1 Katrín Sigurðardóttir Haukur frá Skeiðvöllum Stjörnublikk
3 1 Bragi Birgisson Kolgrímur frá Efri-Gegnishólum Hvolpasveitin
4 2 Sigurður Grétar Halldórsson Ás frá Eystri-Hól Pure North
5 2 Gunnar Eyjólfsson Hljómur frá Litlalandi Ásahreppi Voot beita
6 2 Kristinn Már Sveinsson Silfurperla frá Lækjarbakka Smiðjan brugghús
7 3 Hermann Arason Vörður frá Vindási Vagnar og þjónusta
8 3 Jóhann Albertsson Sinfónía frá Gauksmýri Kidka
9 3 Anna Kristín Kristinsdóttir Frægð frá Strandarhöfði Tölthestar
10 4 Viggó Sigurðsson Faxi frá Hlemmiskeiði 2 Kingsland
11 4 Sigurbjörn J Þórmundsson Freyr frá Hraunbæ Fleygur/Hrísdalur
12 4 Hrafnhildur Guðmundsdóttir Vífill frá Sturlureykjum 2 Límtré Vírnet
13 5 Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir Nótt frá Kommu Trausti fasteignasala
14 5 Ríkharður Flemming Jensen Myrkvi frá Traðarlandi Heimahagi
15 5 Sandra Steinþórsdóttir Nn frá Selfossi Hrafnsholt
16 6 Arnhildur Halldórsdóttir Hvellur frá Ásmundarstöðum 3 Ganghestar
17 6 Magnús Ingi Másson Farsæll frá Litla-Garði Smiðjan brugghús
18 6 Eyrún Jónasdóttir Mist frá Einhamri 2 Hvolpasveitin
19 7 Elín Hrönn Sigurðardóttir Snilld frá Skeiðvöllum Stjörnublikk
20 7 Sævar Örn Sigurvinsson Sævar frá Arabæ Pure North
21 7 Vilborg Smáradóttir Sónata frá Efri-Þverá Vagnar og þjónusta
22 8 Patricia Ladina Hobi Jökull frá Hofsstöðum Voot beita
23 8 Jóhann Ólafsson Ísafold frá Velli II Heimahagi
24 8 Bergdís Finnbogadóttir Blær frá Einhamri 2 Kingsland
25 9 Halldór Sigurkarlsson Nökkvi frá Hrísakoti Tölthestar
26 9 Gunnar Sturluson Lyfting frá Kvistum Fleygur/Hrísdalur
27 9 Jónas Már Hreggviðsson Kolbeinn frá Hrafnsholti Hrafnsholt
28 10 Gunnar Már Þórðarson Þengill frá Votumýri 2 Límtré Vírnet
29 10 Darri Gunnarsson Ísing frá Harðbakka Trausti fasteignasala
30 10 Halldór P. Sigurðsson Muninn frá Hvammstanga Kidka
31 11 Sanne Van Hezel Völundur frá Skálakoti Stjörnublikk
32 11 Sylvía Sól Magnúsdóttir Siggi Sæm frá Þingholti Voot beita
33 11 Kristín Ingólfsdóttir Tónn frá Breiðholti í Flóa Vagnar og þjónusta
34 12 Jóna Margrét Ragnarsdóttir Frami frá Efri-Þverá Ganghestar
35 12 Sigurður Halldórsson Gustur frá Efri-Þverá Pure North
36 12 Sigurbjörn Viktorsson Sókron frá Hafnarfirði Heimahagi
37 13 Jón Ó Guðmundsson Glymur frá Hofsstöðum, Garðabæ Smiðjan brugghús
38 13 Þórdís Sigurðardóttir Hlíf frá Strandarhjáleigu Hvolpasveitin
39 13 Elísabet Gísladóttir Kolbrá frá Hrafnsholti Hrafnsholt
40 14 Svandís Beta Kjartansdóttir Flinkur frá Svarfhóli Kingsland
41 14 Guðmundur Jónsson Ýr frá Reykjum Fleygur/Hrísdalur
42 14 Björg María Þórsdóttir Bersir frá Hægindi Límtré Vírnet
43 15 Bryndís Arnarsdóttir Teitur frá Efri-Þverá Trausti fasteignasala
44 15 Sævar Örn Eggertsson Hrafnveig frá Álfhólum Tölthestar
45 15 Pálmi Geir Ríkharðsson Káinn frá Syðri-Völlum Kidka

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link