Ráslisti fyrir fimmganginn
Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum er á morgun, föstudag, og keppt verður í fimmgangi. Keppnin hefst kl 20:00 og er sýnd í opinni dagskrá á RÚV 2 og í áskrift á Alendis.is
Frítt verður inn í Samskipahöllina í boði Líflands, og hvetur stjórn Meistaradeildarinnar alla hestaunnendur til að gera sér dagamun og mæta, húsið opnar kl 17:30, boðið verður upp á kótilettur í raspi og drykki af öllum stærðum og gerðum.
Þetta stefnir í hörkukeppni en ráslistinn fyrir mótið er klár og hægt að sjá hann hér fyrir neðan. Tveir knapar keppa í uppboðssætum en það eru þau Hanna Rún Ingibergsdóttir á Júní frá Brúnum og Sigurður Sigurðarson á Hallsteini frá Þjóðólfshaga 1. Þau eru bæði knapar í deildinni og geta með þessu safnað sér stigum í einstaklingskeppninni en safna ekki stigum fyrir liðið sitt.
Af þeim sex pörum sem komust í úrslit í fyrra er aðeins eitt skráð til leiks en það eru þau Árni Björn Pálsson og Katla frá Hemlu II en þau enduðu í öðru sæti í fyrra. Það var Olil Amble sem vann þessa grein í fyrra en hún er ekki með í deildinni í ár.
Ráslisti – Fimmgangur – Meistaradeild í hestaíþróttum
Nr. Knapi Hestur Faðir Móðir Lið
1 Davíð Jónsson Alrún frá Dalbæ Sjóður frá Kirkjubæ Stemma frá Dalbæ Skeiðvellir/Storm Rider
2 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Silfurskotta frá Sauðanesi Ölnir frá Akranesi Sunna frá Sauðanesi Ganghestar/Margrétarhof
3 Þórarinn Eymundsson Þráinn frá Flagbjarnarholti Álfur frá Selfossi Þyrla frá Ragnheiðarstöðum Þjóðólfshagi/Sumarliðabær
4 Konráð Valur Sveinsson Seiður frá Hólum Trymbill frá Stóra-Ási Ösp frá Hólum Top Reiter
5 Hans Þór Hilmarsson Sindri frá Hjarðartúni Stáli frá Kjarri Dögun frá Hjarðartúni Hjarðartún
6 Sara Sigurbjörnsdóttir Flóki frá Oddhóli Ás frá Ármóti Fía frá Oddhóli Auðsholtshjáleiga
7 Viðar Ingólfsson Eldur frá Mið-Fossum Hrannar frá Flugumýri II Snekkja frá Bakka Hrímnir/Hest .is
8 Hanna Rún Ingibergsdóttir Júní frá Brúnum Hrannar frá Flugumýri II Birta frá Brúnum Uppboðssæti
9 Gústaf Ásgeir Hinriksson Blesa frá Húnsstöðum Hnokki frá Dýrfinnustöðum Baldursbrá frá Húnsstöðum Hestvit/Árbakki
10 Arnar Bjarki Sigurðarson Álfaskeggur frá Kjarnholtum I Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum Hera frá Kjarnholtum I Hrímnir/Hest .is
11 Sigursteinn Sumarliðason Cortes frá Ármóti Stáli frá Kjarri Sandra frá Ármóti Skeiðvellir/Storm Rider
12 Árni Björn Pálsson Katla frá Hemlu II Skýr frá Skálakoti Spyrna frá Síðu Top Reiter
13 Bjarni Jónasson Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli Mjölnir frá Hlemmiskeiði 3 Orka frá Hvolsvelli Þjóðólfshagi/Sumarliðabær
14 Sigurður Sigurðarson Hallsteinn frá Þjóðólfshaga 1 Sær frá Bakkakoti Hugsjón frá Húsavík Uppboðssæti
15 Jakob Svavar Sigurðsson Hafliði frá Bjarkarey Sær frá Bakkakoti Björk frá Vindási Hjarðartún
16 Ásmundur Ernir Snorrason Páfi frá Kjarri Tinni frá Kjarri Nunna frá Bræðratungu Auðsholtshjáleiga
17 Sigurður Vignir Matthíasson Sproti frá Vesturkoti Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum Stelpa frá Meðalfelli Ganghestar/Margrétarhof
18 Pierre Sandsten Hoyos Goðasteinn frá Haukagili Hvítársíðu Óskasteinn frá Íbishóli Katla frá Steinnesi Hestvit/Árbakki
19 Matthías Leó Matthíasson Heiðdís frá Reykjum Gaumur frá Auðsholtshjáleigu Vænting frá Reykjum Skeiðvellir/Storm Rider
20 Benjamín Sandur Ingólfsson Smyrill frá V-Stokkseyrarseli Orri frá Þúfu í Landeyjum Rák frá Halldórsstöðum Hrímnir/Hest .is
21 Teitur Árnason Auðlind frá Þjórsárbakka Loki frá Selfossi Gola frá Þjórsárbakka Top Reiter
22 Mette Mannseth Kalsi frá Þúfum Trymbill frá Stóra-Ási Kylja frá Stangarholti Þjóðólfshagi/Sumarliðabær
23 Þórarinn Ragnarsson Ronja frá Vesturkoti Spuni frá Vesturkoti Hrafnhetta frá Steinnesi Hjarðartún
24 Glódís Rún Sigurðardóttir Snillingur frá Íbishóli Vafi frá Ysta-Mó Ósk frá Íbishóli Ganghestar/Margrétarhof
25 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Jökull frá Breiðholti í Flóa Huginn frá Haga I Gunnvör frá Miðsitju Auðsholtshjáleiga
26 Hinrik Bragason Telma frá Árbakka Framherji frá Flagbjarnarholti Embla frá Oddgeirshólum Hestvit/Árbakki
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH